"Ég er að leita að ástæðu til að kjósa flokkinn minn (XD).

Flokkurinn minn fyrrverandi "Sjálfstæðisflokkurinn" sem hefur átt mitt atkvæði frá þvi ég fæddist er alls ekki að átta sig á stöðunni.  Ég hef verið að reyna að finna ástæðu til að breyta skoðun minni um að kjósa hann ekki.  Mér gengur hins vegar afar illa að breyta um skoðun.

Vörslumenn flokksins þurfa að viðurkenna og horfast í augu við staðreynir, hreinsa út og breyta um vinnubrögð.  Allt þarf þetta að gerast fyrir opnum tjöldum.  Gamla sukkið gengur ekki lengur.

En það er ekki að gerast og á meðan blæðir Sjálfstæðisflokknum og ég held áfram að leita að ástæðu til að kjósa flokkinn minn!!!!!!!!!!

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Er þá ekki komin tími til að breyta til,ekki alltaf  að vera í gamla farinu,það er holt að breyta til,og gefa þeim fjögur ár til að sanna sig og sýna okkur,að þeim sé alvara með breytingar,ekki trúa þeim korter fyrir kosningar,það á að refsa þeim núna,og kjósa einkvað nýtt í ár,þá koma þeir kannski tvíeflir aftur eftir fjögur ár,öllum er holt að breyta til,nú er komið að þér Jóhann,ekki hika við,þá sefur þú mjög vel á eftir. GLEÐILEGA PÁSKA.

Jóhannes Guðnason, 12.4.2009 kl. 08:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband