3.8.2008 | 14:55
Steve Hackett, Djabe, Gulli Briem og Saulkrasti Jazz Festival
Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að fara á hljómleika, alls konar hljómleika. Er í skýjunum núna eftir að hafa farið á Saulkrasti ("sólarströnd") Jazz Festival í gærkveldi. Aðalnúmmerið var ungversk jazzhljómsveit Djabe (hún er frábær og í línu við Mezzoforte) en gestur þeirra þessi dægrin er fyrrverandi gítarleikari Genesis, Steve Hackett. Frábær upplifun. Nú á ég bara Peter Gabriel eftir til að hafa séð alla Genesis spilarana! Og ekki átti ég von á að sjá Gunnlaug Briem þarna líka lemja húðir í góðu föruneyti. Mæli með að djazzgeggjarar komi til Lettlands á þessa hátið að ári! Næst á dagskrá er Sigur Rós í ágúst! Sleppti Björk enda hef ég aldrei "fílað" hana. Þeir sem það gera finnst hún góð! Hér er annars afar heitt og í kvöld fer nautasteik á grillið (kostar brot af því sem hún kostar á Fróni). Svo er líka frábær ópera hér til að drepa tíman á veturna! Wagner var einu sinni þar í vinnu!
Athugasemdir
Gaman ef Steve Hackett er farinn að spila jazz. Líkaði hann aldrei sem gítarleikara vegna þess hve stifur hann var. Fannst alltaf að hann væri í tilfinningalusri fingraleikfimi. Á eina plötu, vinil, með honum sem ég hef ekki hlustað á í ein 22 ár. Kannski ég grafi hana upp núna og prófi aftur.
Annars er nýji diskurinn með Peter Gabriel að fá fanta dóma. Peter Gabriel & Friends, Big Blue Ball. Upptökur með vinum og kunningjum á árunum 1991 - 1995. Ætla að trítla í búðina á morgum og fjárfesta í gripnum
Dunni, 3.8.2008 kl. 15:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.